Alls skráðu 5.022 einstaklingar flutning innanlands í september til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 8,2% þegar 5.472 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun um 1,7% þegar 5.107 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.196 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.855 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 390 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 286 innan landshlutans og 82 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 502 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 375 innan landshlutans en 96 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
| Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
| Höfuðborgarsvæðið | 2.855 | 98 | 32 | 33 | 12 | 44 | 14 | 108 | 3.196 |
| Suðurnes | 82 | 286 | 1 | 1 | 1 | 5 | 3 | 11 | 390 |
| Vesturland | 37 | 5 | 133 | 5 | 0 | 4 | 4 | 3 | 191 |
| Vestfirðir | 18 | 0 | 5 | 68 | 0 | 3 | 5 | 2 | 101 |
| Norðurland-Vestra | 15 | 1 | 3 | 0 | 26 | 14 | 0 | 2 | 61 |
| Norðurland-Eystra | 44 | 1 | 2 | 1 | 0 | 343 | 5 | 14 | 410 |
| Austurland | 32 | 2 | 1 | 1 | 2 | 15 | 115 | 3 | 171 |
| Suðurland | 96 | 11 | 4 | 3 | 6 | 4 | 3 | 375 | 502 |
| Alls til | 3.179 | 404 | 181 | 112 | 47 | 432 | 149 | 518 | 5.022 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.