Í ljósi frétta undanfarna daga um falsanir og misnotkun á skilríkjum ungmenna vill Þjóðskrá Íslands vekja athygli á að stofnunin gefur út örugg og áreiðanleg persónuskilríki í formi nafnskírteina.
Nafnskírteinin eru plastkort í kreditkortastærð sem fara mjög vel í vasa, tösku eða undir farsímahulstri. Á skírteinunum er stór og skýr andlitsmynd sem auðveldar þeim sem taka við kortinu að sannreyna að kortið tilheyrir þeim sem framvísar því.
Það eru til tvær tegundir af nafnskírteinum. Annars vegar nafnskírteini og hins vegar nafnskírteini sem gildir einnig sem ferðaskilríki í stærstum hluta Evrópu. Skírteinin eru í sömu stærð og líta nánast eins út.
Börn sem eru 13 ára og eldri geta fengið nafnskírteini án aðkomu forráðamanna og staðfesting annars forráðamanns nægir fyrir börn sem eru yngri en 13 ára.
Fyrir nafnskírteini sem er ferðaskilríki þarf hins vegar samþykki beggja forráðamanna þegar gefið er út fyrir börn yngri en 18 ára. Þessar staðfestingar geta forráðamenn veitt með rafrænum hætti á island.is ef umsókn er forskráð þar.
Ferlið er einfalt og þægilegt og á höfuðborgarsvæðinu er hægt að sækja tilbúin skírteini allan sólarhringinn í verslun Hagkaups í Skeifunni.
Hægt er að hefja umsókn um nafnskírteini á ísland.is.
Allar nánari upplýsingar um nafnskírteini er að finna á heimasíðu okkar.