Fólk06. nóvember 2026

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. nóvember 2026

Skráðum íbúum Reykjavíkurborgar fækkaði um 209 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. nóvember 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 500 íbúa. Skráðum íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 224 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 431 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 377 íbúa.

 
Athugið! Vert er að benda á að átaksverkefni Þjóðskrár við uppfærslu lögheimilisskráninga getur haft áhrif á íbúafjölda sveitarfélaga og þar með á breytingu á milli tímabila.

Skráðum íbúum Reykjavíkurborgar fækkaði um 209 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. nóvember 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 500 íbúa. Skráðum íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 224 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 431 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 377 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Árneshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 11,5% en íbúum þar fjölgaði um 7 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Grýtubakkahreppi eða um 6,6%.  Af 61 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 23 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 38 sveitarfélögum.  

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar