Alls voru 82.532 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember sl. og fækkaði þeim um 1.407 einstaklinga eða um 1,7% frá 1. desember 2025.
Mest fjölgun hefur verið á ríkisborgurum frá Úkraínu, þeim hefur fjölgað um 181 einstaklinga frá 1. des. sl. Þar á eftir koma ríkisborgarar frá Spáni og loks Tyrklandi.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 2.535 einstaklinga eða um 0,8%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. nóvember 2026 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2025.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.