Staðfesting á íslenskum ríkisborgararétti - 7 ára búseta á Norðurlöndum

Íslenskur ríkisborgari getur misst íslenskt ríkisfang sitt við 22 ára aldur ef hann er fæddur erlendis og hefur aldrei átt lögheimili hér á landi né dvalist hér að því marki að af því megi ráða að hann vilji vera íslenskur ríkisborgari.

Afgreiðslutími:

Fer eftir eðli máls

Verð:Gjaldfrjálst
form-io
Tungumál:
 

Athugið

Íslenskur ríkisborgari, sem er fæddur erlendis og hefur aldrei átt lögheimili á Íslandi þarf að staðfesta að hann vilji halda íslenska ríkisfanginu fyrir 22 ára aldur.

Sérstök skilyrði gilda fyrir íslenska ríkisborgara sem hafa haft lögheimili í Danmörku, Noregi, Finnlandi eða Svíþjóð samkvæmt lögum um íslenskan ríkisborgararétt. Þar kemur fram að meta skuli lögheimili í að minnsta kosti 7 ár í norrænu samningsríki til jafns við lögheimili hér á landi.