Rafrænt umboð hjá Þjóðskrá
Hér getur þú veitt öðrum rafrænt umboð til að sækja vegabréf, nafnskírteini eða vottorð hjá Þjóðskrá. Jafnframt er hægt er að sjá yfirlit yfir þau umboð sem þú hefur þegar veitt eða fengið frá öðrum. Þú getur hvenær sem er bætt við nýjum umboðum eða afturkallað gildandi umboð. Rafræna umboðið gildir í þann tíma sem umboðsveitandi tilgreinir þó í mesta lagi 30 daga.
Einnig er hægt er að veita umboð með pappírsumsókn hér.
Eitt af eftirfarandi skilríki/skírteini þarf umboðshafi að hafa meðferðis fyrir afhendingu á gögnum; vegabréf, nafnskírteini, dvalarleyfiskort eða ökuskírteini.
Athugið
Aðeins er hægt að veita umboð til að sækja gögn til Þjóðskrár, Borgartúni 21.
- Veita umboð: Til að veita umboð þarft þú að tilgreina kennitölu umboðshafa, velja hvaða gögn eða skilríki umboðið nær til og setja gildistíma.
- Afturkalla umboð: Þú getur eytt eða afturkallað umboð hvenær sem er. Breytingin tekur gildi um leið og hún er vistuð.
- Móttekin umboð: Undir flipanum „Umboð sem þér hefur verið veitt“ sérð þú yfirlit yfir þau umboð þar sem þú hefur heimild til að koma fram fyrir hönd annarra.
- Réttindi umboðshafa: Umboðshafi þarf að framvísa eigin skilríkjum hjá Þjóðskrá þegar gögn eða skilríki eru sótt.