Hjúskaparstöðuvottorð (Giftir einstaklingar skulu panta hjónavígsluvottorð, D-113) - Pantað af lögaðila/fyrirtæki

Vottorð um núverandi hjúskaparstöðu, t.d. ógift/ur, skilin/n að borði og sæng, lögskilin/n, ekkja/ekkill/maki látinn eða að hjúskaparstaða er óupplýst.

Afhendingarmáti:Pósthólf Ísland.isBréfpósturSækja í Reykjavík
Afgreiðslutími:

Allt að 2 virkir dagar

Verð:3.000 kr

Athugið

Lögaðili/fyrirtæki sem pantar vottorð þarf að vera með umboð frá vottorðshafa, til að panta vottorð og fá það afhent. Afrit af umboðinu þarf að setja inn í vottorðapöntunina sjálfa.

Athugið að vottorðið inniheldur einungis upplýsingar um núverandi hjúskaparstöðu ásamt dagsetningu síðustu breytingar. Upplýsingar um fyrrverandi maka, látna maka eða aðrar breytingar á hjúskaparstöðu koma ekki fram. Ef þörf er á upplýsingum um fyrri maka eða breytingar á hjúskaparstöðu þá þarf að panta hjúskaparsöguvottorð.

Nánari upplýsingar um vottorð