Hver býr í eigninni minni?
Hér geta þinglýstir eigendur flett upp hver býr í þeirra eign og tilkynnt um ranga skráningu þeirra sem ekki búa þar.
Rétt á skráningu lögheimilis á tilteknu heimilisfangi á sá sem hefur þar bækistöð sína, dvelst þar að jafnaði í tómstundum sínum, hefur þar heimilismuni sína og er hans svefnstaður þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir.
Athugið
Hámarksfjöldi íbúa:
- Þinglýstir eigendur fasteigna geta staðfest á vef Þjóðskrár hversu margir einstaklingar mega hafa lögheimili skráð í þeirra eign. Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um skráningu hámarksfjölda íbúa.
- Skráð hámark eitt og sér jafngildir ekki tilkynningu um ranga skráningu í eigninni og þarf að tilkynna um ranga skráningu einstaklinga hér á formi A-254 Hver býr í eigninni minni?
Þegar tilkynning berst Þjóðskrá fer í gang ferli sem miðast að því að framfylgja stjórnsýslulögum nr. 37/1993.
Í því felst að Þjóðskrá ber skyldu til þess að upplýsa umræddan aðila um framkomið erindi og veita honum frest til þess að bregðast við því.
Ef engin viðbrögð berast getur Þjóðskrá breytt skráningu viðkomandi í samræmi við fyrirliggjandi upplýsingar.