Íslendingar búsettir erlendis – má ég kjósa?
Hér geta íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis kannað hvort þeir séu með kosningarétt við kosningar til Alþingis, við kjör forseta Íslands og við þjóðaratkvæðagreiðslur.
Íslenskur ríkisborgari á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu.
Eftir 16 ár þarf að sækja um að halda kosningarétti og er rétturinn virkur í 4 ár í senn. Nauðsynlegt er að endurnýja umsókn sé þess óskað að halda kosningaréttinum.
Ef þú hefur spurningar eða athugasemdir geturðu sent erindi á kosningar@skra.is.
Verð:Gjaldfrjálst
Athugið
Hverjir geta sótt um að vera á kjörskrá?
- Íslenskir ríkisborgarar, sem hafa náð 18 ára aldri og hafa átt lögheimili erlendis lengur en 16 ár verða að sækja um til Þjóðskrár um að verða teknir á kjörskrá.
- Fullnægjandi umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá fyrir 1. desember árinu áður en kosningar eiga að fara fram.
Fyrirvari vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
- Athugið að umsóknir sem eru staðfestar eftir 1. desember 2025 jafngilda ekki kosningarétt við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026.