Lögheimilissaga - með heimilisföngum. Sérvinnsla

Upptalning á lögheimilum þ.e. heimilisföngum og sveitarfélagi á Íslandi frá tilteknum tíma til dagsins í dag. Ef einstaklingurinn hefur átt lögheimili erlendis þá er land/lönd tilgreind en ekki heimilisföng.

Afhendingarmáti:Pósthólf Ísland.isBréfpósturSækja í Reykjavík
Afgreiðslutími:

Allt að 2 virkir dagar

Verð:11.350 kr

Athugið

Lögheimilissöguvottorð eru einstaklingsvottorð. Hjón, sambúðaraðilar eða einstaklingar á sameiginlegu lögheimili verða að panta hver sitt vottorðið ef sýna þarf fram á sameiginlegt lögheimili aftur í tímann.

Rafræn vottorð með rafrænni undirritun eru að öllu leyti jafngild og hefðbundin pappírsvottorð. Rafræn vottorð eru afhent í pósthólf á Ísland.is. Vottorð eru afhent í pósthólf vottorðshafa nema þegar um dánarvottorð er að ræða eða þegar pantað er fyrir hönd barna. Þá er vottorð aðgengilegt í pósthólfi þess sem pantar.

Athugið að eins og staðan er núna er ekki hægt að fá Apostille vottun á rafræn vottorð

Nánari upplýsingar um vottorð