Samþykki vegna útgáfu ferðaskilríkis fyrir barn

Verð:Gjaldfrjálst

Athugið

Þegar sótt er um ferðaskilríki (vegabréf eða nafnskírteini sem telst ferðaskilríki) fyrir barn yngra en 18 ára skulu báðir forsjáraðilar mæta, ef við á, ásamt barni, til þess að sækja um skilríki barnsins. Forsjáraðilar þurfa að framvísa löggildum skilríkum. Ef annar forsjáraðili barns getur ekki mætt skal hann rita vottað samþykki sitt á þetta eyðublað.

Ef aðrir en foreldrar barns fara með forsjá þess fer um samþykki þeirra með sama hætti. Eigi undirritaðir ekki íslenska kennitölu þarf afrit af skilríkjum þeirra. Upplýsingar um skráða forsjá er að finna á mínum síðum á Ísland.is. Forsjá barns er könnuð hjá Þjóðskrá áður en ferðaskilríki er gefið út.

Refsivert getur verið að veita rangar upplýsingar um forsjá skv. 11. gr. laga nr. 55/2023 um nafnskírteini og 10.gr. laga nr. 136/1998 um vegabréf

Athugið að þegar tilbúin ferðaskilríki barna eru sótt til Þjóðskrár eða á umsóknarstað þá er nóg að annar forsjáraðili mæti með löggild skilríki, og barnið þarf ekki að koma með.