Lögheimilissaga - án heimilisfanga, en lönd tilgreind. Búsetutímavottorð

Vottorð fyrir einstakling sem tilgreinir í hvaða landi eða löndum viðkomandi hefur átt lögheimili frá tilteknum tíma til dagsins í dag.

Afhendingarmáti:Pósthólf Ísland.isBréfpósturSækja í Reykjavík
Afgreiðslutími:

Allt að 2 virkir dagar

Verð:3.000 kr

Athugið

Lögheimilissöguvottorð eru einstaklingsvottorð. Hjón, sambúðaraðilar eða einstaklingar á sameiginlegu lögheimili verða að panta hver sitt vottorðið ef sýna þarf fram á sameiginlegt lögheimili aftur í tímann. 

Rafræn vottorð með rafrænni undirritun eru að öllu leyti jafngild og hefðbundin pappírsvottorð. Rafræn vottorð eru afhent í pósthólf á Ísland.is. Vottorð eru afhent í pósthólf vottorðshafa nema þegar um dánarvottorð er að ræða eða þegar pantað er fyrir hönd barna. Þá er vottorð aðgengilegt í pósthólfi þess sem pantar.

Athugið að eins og staðan er núna er ekki hægt að fá Apostille vottun á rafræn vottorð

Nánari upplýsingar um vottorð