Staðfesting á tæknifrjóvgun

Barn einhleyps einstaklings sem getið er með tæknifrjóvgun á Íslandi, skv. lögum nr. 55/1996 um tæknifrjóvgun o.fl. verður ekki feðrað skv. barnalögum. Í tilfellum sem þessum þarf fæðingarforeldri barnsins að leggja fram staðfestingu um tæknifrjóvgun innan 6 mánaða frá fæðingu barnsins. Ef staðfesting berst ekki innan tilskilins tíma þá tilkynnir Þjóðskrá Íslands sýslumanni um ófeðrað barn sbr. ákvæði barnalaga.

Verð:Gjaldfrjálst

Athugið

Í tilfellum þar sem fæðingarforeldri er gift eða í sambúð þarf að leggja fram skjal sem staðfestir að getnaður hafi farið fram skv. ákvæðum laga nr. 55/1996 um tæknifrjóvgun o.fl. Vert er að undirstrika að ástæða þess að Þjóðskrá Íslands kallar eftir framangreindum upplýsingum er svo unnt sé að framfylgja barnalögum nr. 76/2003 um skráningu foreldra barns. Sömu reglur gilda um barn sem getið er með tæknifrjóvgun erlendis, en í slíkum tilvikum þurfa einstaklingar sjálfir að útvega gögn frá viðkomandi landi.

Eignist einstaklingur, í hjónabandi eða skráðri sambúð, barn sem ekki er getið með tæknifrjóvgun skv. lögum nr. 55/1996 um tæknifrjóvgun o.fl. eða með tæknifrjóvgun erlendis, eiga almennar reglur barnalaga um faðerni við.