Beiðni um aðgang að utankjörfundakerfi

Verð:Gjaldfrjálst

Athugið

Með beiðni þessari óskar sýslumannsembættið eftir því að Þjóðskrá Íslands opni fyrir aðgang að utankjörfundakerfi fyrir starfsmenn tiltekinna sveitarfélaga innan embættisins.

Með undirritun ábyrgist sýslumannsembættið þá starfsmenn sveitarfélagsins sem fá aðgang að kerfinu, sér um að leiðbeina um notkun kerfisins, tryggir að nauðsynlegur vélbúnaður sem nota þarf við skráningu atkvæða í kerfinu séu til staðar.

Það er á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags að tryggja netsamband og sjá um rekstur vélbúnaðar sem notast við skráningu atkvæða.

Tölvurekstrarsvið Þjóðskrá Íslands sér aðeins um aðgangsstýringar að kerfinu.