Móttekið
Númer:
Þjóðskrá Íslands hefur móttekið beiðni um breytta skráningu á kyni og nafni í þjóðskrá. Vanti einhver gögn eða upplýsingar verður haft samband.
Athugið að beiðnin verður ekki tekin til frekari vinnslu fyrr en staðfesting forsjáraðila liggur fyrir. Tölvupóstur verður sendur á uppgefið netfang þegar staðfestingarform (A-182) er tilbúið fyrir forsjáraðila.
Forsjáraðilar staðfesta beiðnina á formi A-182, með auðkenningu rafrænna skilríkja. Forsjáraðilar hafa tvær vikur til að staðfesta beiðnina, en eftir það fellur hún úr gildi og senda þarf inn nýja beiðni.
Þegar skráningu hefur verið breytt verður staðfesting send í pósthólf á www.island.is
Sé þess óskað að fá útgefin ný persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini) í kjölfar breytingar á skráningu kyns og nafns, þarf að sækja um þau sérstaklega og greiða fyrir.