Notandi býr erlendis

Eingöngu einstaklingar sem eru með lögheimili á Íslandi geta óskað eftir breytingu á skráðu kyni hjá Þjóðskrá Íslands.

Einstaklingur, sem skráður er í þjóðskrá en býr erlendis eða hefur búið þar og fengið leiðréttingu á kyni sínu, getur óskað þess að Þjóðskrá Íslands skrái þessar breytingar í þjóðskrá. Þjóðskrá Íslands metur gildi framlagðra gagna umsækjanda, m.a. hvort nafnbreyting og/eða leiðrétting á kyni hafi verið gerð samkvæmt heimild þar til bærra stjórnvalda eða dómstóla.

Breytt skráning á kyni.