Kyn og nafn - staðfesting forsjáraðila
Staðfesta breytta skráningu kyns fyrir barn yngra en 15 ára
Afhendingarmáti
Með tölvupósti í pósthólf á Mínum síðum á Ísland.is
Afgreiðslutími:
Flest mál eru afgreidd innan nokkurra daga, en í sumum tilvikum getur afgreiðslan tekið lengri tíma.
Verð:Gjaldfrjálst
Athugið
Þegar sótt er um breytta skráningu á kyni barns undir 15 ára þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum barnsins. Forsjáraðilar þurfa að staðfesta beiðnina áður en skráningu er breytt. Tölvupóstur er sendur á uppgefið netfang í umsókn, þegar staðfestingarform A-182 er tilbúið til staðfestingar.