Íslendingar með lögheimili erlendis

Athugið að umsóknarfrestur vegna kjörskrár fyrir komandi forsetakosningar rann út 1. desember 2023. 
Umsóknir sem berast eftir þann tíma taka ekki gildi fyrr en 1. desember 2024.  
Hægt er að kanna kosningarétt sinn í uppflettingunni "Hvar á ég að kjósa?" sem verður aðgengileg 26. apríl næst komandi.

Reglur þessar gilda um alþingiskosningar, forsetakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslna en ekki um kosningar til sveitarstjórna.

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 16 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt í ofangreindum kosningum. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis lengur en 16 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) verða að sækja um til Þjóðskrár um að verða teknir á kjörskrá. Fullnægjandi umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá fyrir 1. desember árinu áður en kosningar eiga að fara fram.

Umsókn þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Umsækjandi verður að hafa íslenskan ríkisborgararétt.
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára á kjördag.
  • Umsækjandi þarf að hafa átt lögheimili á Íslandi.

Uppfylli umsókn ofangreind skilyrði verður viðkomandi einstaklingur tekinn á kjörskrá næstu 4 ár á eftir. Vakin er athygli á að sérstakar reglur gilda um fresti til að senda inn umsókn.