Stolið/týnt nafnskírteini

Nafnskírteini sem tilkynnt eru glötuð eru skráð inn í Schengen og Interpol upplýsingakerfin og eru þar með ónothæf. Tilkynna skal lögreglu, Þjóðskrá, sýslumanni, sendiráð eða ræðisskrifstofur erlendis þegar í stað ef nafnskírteini glatast og skal þá gera sérstaka grein fyrir afdrifum þess.

Þegar búið er að skrá nafnskírteini í ofangreind kerfi þá er það óafturkræft og það getur valdið miklu óhagræði ef því er framvísað á landamærum.

Athugið að einungis er hægt að tilkynna um sitt eigið nafnskírteini og þeirra barna sem tilkynnandi hefur forsjá yfir.

Komi nafnskírteini í leitirnar skal skila því til lögreglu, Þjóðskrá, sýslumanni, sendiráð eða ræðisskrifstofur erlendis.

Umsóknarferli

Upplýsingar um hvernig þú sækir um ný nafnskírteini.

Skoða nánar

Tegundir nafnskírteina

Nánari upplýsingar um tegundir nafnskírteina.

Skoða nánar

Afhending nafnskírteina

Þegar búið er að sækja um nafnskírteini, hvar getur þú sótt það?

Skoða nánar

Spurt og svarað

Spurt og svarað um nafnskírteini.

Skoða nánar