09. nóvember 2023
Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. nóvember 2023
Alls voru 226.044 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. nóvember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.425 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.201 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.956 skrá...