Þjóðskrá15. febrúar 2018

Skráning námsmanna á Norðurlöndum á kjörskrá

Þjóðskrá Íslands hefur tekið upp nýtt umsóknarferli varðandi skráningu námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar

Þjóðskrá Íslands hefur tekið upp nýtt umsóknarferli varðandi skráningu námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar. Breytingarnar felast í því að umræddir námsmenn þurfa nú að tilkynna það rafrænt til Þjóðskrár Íslands að þeir séu námsmenn til þess að vera teknir á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. 

Tilkynninguna skal senda rafrænt á eyðublaði K-101 sem er að finna á vef Þjóðskrár Íslands. Tilskilið er að framvísa staðfestingu á námsvist. Gert er ráð fyrir því að makar og skyldulið námsmanna tilkynni sig á sama hátt með tilvísun í viðkomandi námsmann. Senda þarf inn nýja tilkynningu fyrir hverjar sveitarstjórnarkosningar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar