Þjóðskrá18. júlí 2018

Íbúakosning í Sveitarfélaginu Árborg 18. ágúst 2018

Þjóðskrá Íslands hefur tekið upp umsóknarferli varðandi skráningu námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá fyrir íbúakosningar í Sveitarfélaginu Árborg þann 18. ágúst nk.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið upp umsóknarferli varðandi skráningu námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá fyrir íbúakosningar í Sveitarfélaginu Árborg þann 18. ágúst nk.

Umræddir námsmenn sem áttu síðast skráð lögheimili í sveitarfélaginu þurfa nú að tilkynna það rafrænt til Þjóðskrár Íslands að þeir séu námsmenn til þess að vera teknir á kjörskrá fyrir íbúakosningarnar.

Þeir námsmenn sem áttu síðast skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg og sóttu um fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 26. maí sl., þurfa ekki að sækja um aftur.

Tilkynninguna skal senda rafrænt á eyðublaði K-101 sem er að finna á vef Þjóðskrár Íslands. Tilskilið er að framvísa staðfestingu á námsvist. 
Gert er ráð fyrir því að makar og skyldulið námsmanna tilkynni sig á sama hátt með tilvísun í viðkomandi námsmann.
 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar