Þjóðskrá16. ágúst 2018

Aldurs- og kynjaskipting íbúa sveitarfélaga

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um kynjaskiptingu íbúa sveitarfélaga og miðast tölurnar við 15. júlí sl.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um kynjaskiptingu íbúa sveitarfélaga og miðast tölurnar við 15. júlí sl. Nokkur breytileiki er í kynjaskiptingu íbúa og hlutfalli barna í sveitarfélögum. Ef horft er til hlutfalls karla þá er hæsta hlutfallið að finna í Fljótsdalshreppi en þar eru 54,8% íbúa karlar átján ára og eldri. Þess má geta að hlutfall kvenna á sama aldri er einungis 34,2% íbúa og hlutfall einstaklinga 18 ára og yngri er 11%. Það sveitarfélag sem státar af hlutfallslega flestu kvenfólki er Tjörneshreppur, með 50% en hlutfall karlmanna er 43,1% og hlutfall barna er einungis 6,9%. Mjög mikill breytileiki er í hlutfallslegum fjölda einstaklinga undir 18 ára aldri eftir sveitarfélögum.  Hæst er hlutfallið í Reykhólahreppi en þar eru 27,2% skráðra íbúa átján ára og yngri. Næst kemur Grindavíkurbær með 26,5% skráðra íbúa undir átján ára. Með lægsta hlutfallið eru Árneshreppur með aðeins  2,2% skráðra íbúa undir átján ára aldri og Tjörneshreppur með 6,9% íbúa. 

 
 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar