Þjóðskrá17. desember 2018

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í nóvember 2018

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands stofnuðu 242 einstaklingar til hjúskapar í nóvember en 119 einstaklingar skildu.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands stofnuðu 242 einstaklingar til hjúskapar í nóvember en 119 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 242 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 122 í hjúskap hjá sýslumanni eða 50,4% og 80 giftu sig í þjóðkirkjunni (33,1%), 34 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju og 6 einstaklingar giftu sig erlendis.

Alls hafa 3.502 einstaklingar gengið í hjónaband á fyrstu ellefu mánuðum ársins. Á síðasta ári gengu  3.956 manns í hjónaband og var það metár. 

Hlutur Þjóðkirkjunnar í hjónavígslum hefur farið minnkandi hin síðari ár

Um aldamót var hlutur Þjóðkirkjunnar rúmlega 71% en er á yfirstandandi ári komin niður fyrir 50%.  Á sama tímabili jókst hlutur hjónavígsla hjá sýslumanni úr rúmlega 13% í rúmlega 31% og hlutur annarra trúfélaga úr 7% í  rúmlega 15,5%. 

Skilnaðir

Af þeim 119 einstaklingum sem skildu í nóvember þá var 118 lögskilnaður framkvæmdur hjá sýslumanni og einn fyrir dómi.  Það sem af er ári hafa 1.178 einstaklingar skilið samanborið við 1.394 einstaklinga á öllu síðasta ári.

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1999 til 2018. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum frá trú – og lífsskoðunarfélögum og sýslumannsembættum sem berast Þjóðskrá Íslands. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar