Þjóðskrá31. janúar 2019

Hverjir eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði? - janúar 2019

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Kaupendum og seljendum er skipt eftir því hvort þeir eru fyrirtæki eða einstaklingar og gögnin sett fram eftir ársfjórðungum til þess að minnka sveiflur af völdum mismikilla viðskipta í einstökum mánuðum.  

Mynd 1. Skipting viðskipta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 

 

Mynd 2.  Skipting viðskipta með íbúðarhúsnæði í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar. 

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á myndrænan hátt.

Fyrstu kaupendur

Frá október 2015 hefur Þjóðskrá Íslands birt upplýsingar um fjölda þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Taldir eru þinglýstir kaupsamningar og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku. Heimild til lægri stimpilgjalda vegna fyrstu kaupa hefur verið til staðar frá 1. júlí 2008. Af þessum sökum eru engar þinglýstar upplýsingar um fyrstu kaup fyrir þann tíma. Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum.

Upplýsingar um fyrstu kaup 4. ársfjórðung 2018

  Fjöldi kaupsamninga Þar af fyrstu kaup  Hlutfall fyrstu kaup 
 Höfuðborgarsvæðið  2249  565  25%
 Suðurnes  285  83  29%
 Vesturland  135  35  26%
 Vestfirðir  46  8  17%
 Norðurland vestra  34  9  26%
 Norðurland eystra  244  60  25%
 Austurland  102  28  27%
 Suðurland  254  49  19%

 

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum frá 2008.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar