Þjóðskrá04. febrúar 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - febrúar 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 438 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. febrúar sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 0,3%.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 438 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. febrúar sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  0,3%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Mosfellsbær með 145 íbúa (1,3% fjölgun) og Kópavogur með 142 íbúa (0,4% fjölgun). 

Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 8,6% en íbúum þar fjölgaði úr 58 í 63 íbúa.  
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5,0% og í Borgarfjarðarhreppi um 2,8%. 
Þá fækkaði íbúum í 29 sveitarfélögum af 72 sveitarfélögum landsins í síðan  frá 1. desember sl. 

Fækkun í þremur landshlutum af átta

Fækkun hefur orðið í þremur landshlutum frá 1. desember sl. Mest fækkaði á Vesturlandi eða um 33 íbúa sem er 0,2% fækkun.  Ennfremur var lítilsháttar fækkun á Austurlandi og Vestfjörðum. 
Hlutfallslega mest fjölgun varð á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum eða um 0,4%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 824 íbúa og íbúum á Suðurnesjum um 121 íbúa. 


Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum þann 1. febrúar sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.     


Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar