Þjóðskrá05. júní 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í júní 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 567 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. júní. Nú eru 232.105 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 567 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. júní.  Nú eru 232.105 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 375 manns eða um 2,7% og í Siðmennt um 202 manns eða um 7,2%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 137 manns sem er 3,1%. 

Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 25.343 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 580 frá 1. desember 2018 eða um 2,3%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. júní sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar