Þjóðskrá01. júlí 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - júlí 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 908 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. júlí sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 0,9%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 473 íbúa eða 1,3% fjölgun og Mosfellsbær með 377 íbúa eða 3,3% fjölgun.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.161 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. júlí sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  0,9%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 473 íbúa eða 1,3% fjölgun og Mosfellsbær með 377 íbúa eða 3,3% fjölgun. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Skagabyggð

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skagabyggðar hlutfallslega mest eða um 10,2%, um 9 eða úr 88 í 97 íbúa.  

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi, um 6,8% og í Árneshreppi um 5,0%.  Þá fækkaði íbúum í 20 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember sl. Þess má geta að af þeim 72 sveitarfélögum í landinu þá eru 39 þeirra með íbúafjölda undir eitt þúsund. Af þeim fækkaði íbúum í 16 þeirra eða 41% sveitafélaga frá 1. desember sl.

Alls eru 23 sveitafélög  með íbúafjölda á bilinu 1.000 til 5.000 og fækkaði í 4 þeirra eða 17% sveitafélaga.  Engin fækkun varð í sveitafélögum með yfir 5.000 íbúa á umræddu tímabili. 

Fjölgar í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum

Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember sl. nema á Vestfjörðum þar sem fækkar um 9 manns. 

Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi, þar fjölgaði um 600 íbúa eða 2,0%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 2.396 eða 1,1% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 508 eða 1,9%. 


Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. júlí sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar