Þjóðskrá10. ágúst 2020

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í ágúst 2020

Alls voru 230.692 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. ágúst síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.686 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.035 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt

Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 344 meðlimi. Í ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 244 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 462 og í zuism fækkaði um 194 meðlimi.

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 26.946 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. júlí sl. eða 7,3% landsmanna. Alls eru 54.342 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 14,8%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. ágúst sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.   

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar