Þjóðskrá07. október 2020

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög - október 2020

Alls voru 230.146 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands.

 
Alls voru 230.146 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.680 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.031 meðlimi.

Fjölgun mest í Siðmennt

Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 446 meðlimi.  Í ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 308 meðlimi.  Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.008 og í zuism fækkaði um 249 meðlimi. 

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 27.404 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. október sl. eða 7,4% landsmanna. Alls eru 55.1943 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 15,0%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. október sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.  

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar