Fólk11. janúar 2021

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi - janúar 2021

Alls voru 51.331 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. janúar 2021 og fækkaði þeim um 47 síðastliðinn mánuð.

 

Alls voru 51.331 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. janúar 2021 og fækkaði þeim um 47 síðastliðinn mánuð.  Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 244 einstaklinga.
Pólskum ríkisborgurum fækkaði á ofangreindu tímabili um 115 einstaklinga og litháískum ríkisborgurum fækkaði um 28 einstaklinga.  Tékkneskum ríkisborgurum fækkaði um 67 einstaklinga. Hins vegar fjölgaði frönskum ríkisborgurum um 55 síðastliðinn mánuð.  
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018 til 2020 og 1. janúar 2021. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar