Fólk09. febrúar 2021

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi - febrúar 2021

Alls voru 51.328 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. febrúar 2021 og fækkaði þeim um 50 frá 1. desember 2020.

 

Alls voru 51.328 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. febrúar 2021 og fækkaði þeim um 50 frá 1. desember 2020.  Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 484 einstaklinga.
Pólskum ríkisborgurum fækkaði á ofangreindu tímabili um 169 einstaklinga og litháískum ríkisborgurum fækkaði um 26 einstaklinga.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018 til 2020 og 1. febrúar 2021. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar