Fólk02. júní 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - júní 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.019 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. júní 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 297 íbúa.

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.019 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. júní 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 297 íbúa.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 111 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað nokkuð hressilega  eða  um 745 íbúa eða um 3,7%. 

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fimm mánuði eða um 18,3% en íbúum þar fjölgaði um 11 íbúa. 

Af 65 núverandi  sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 13 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 52 sveitarfélögum. 

Fjölgar í öllum landshlutum nema einum
Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 3,0% sem er fjölgun um 865 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 1,5% á tímabilinu eða um 501 íbúa.  Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 52 eða um 0,7%. 

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019 - 2021.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar