Þjóðskrá05. desember 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í desember 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 4.003 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. desember 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 813 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 300 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.628 íbúa eða um 8,0%. Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði hins vegar um 64 eða 1,4%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshrepp 

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðið ár eða um 22,0% en íbúum þar fjölgaði um 9 íbúa. Árneshreppur er líka fámennasti hreppur landsins og telur nú 50 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Kjósahreppi eða 16,7% en þar fjölgaði íbúum um 41. Einnig var töluverð hlutfallsleg fjölgun í Ásahrepp eða um 12,3% og Bláskógarbyggð eða 10,5%. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 9 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 55 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 6,6% sem er fjölgun um 1.927 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 4,3% á tímabilinu eða um 1.406 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 11.319 frá 1. desember 2021 sem er um 3,4%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2021.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar