Fólk08. maí 2023

Íbúakosningar 19. Júní – 10. Júlí í Sveitarfélaginu Hornafirði - Skráning námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá

Vegna íbúakosninga í Sveitarfélaginu Hornafirði sem fram fara frá 19. júní til 10. júlí nk. geta þeir námsmenn á Norðurlöndunum sem áttu síðast skráð lögheimili á Íslandi í umræddu sveitarfélagi sótt um að vera teknir á kjörskrá.

Athugið að umsóknin gildir eingöngu fyrir þessar einu kosningar.

Tilkynningu um nám á norðurlöndunum skal senda rafrænt á eyðublaðinu K-101 sem er að finna hér á heimasíðu stofnunarinnar. Tilskilið er að framvísa staðfestingu á námsvist. Gert er ráð fyrir því að makar og skyldulið námsmanna tilkynni sig á sama hátt með tilvísun í viðkomandi námsmann.

Umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá Íslands fyri kl 12 á hádegi 10. maí nk., sbr. 3. mgr. 4. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

Nánari upplýsingar í síma 515-5300 eða með tölvupósti á kosningar@skra.is


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar