Fólk11. maí 2023

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. maí 2023

Alls voru 68.419 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 3.834 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 5,9%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 611 einstaklinga eða um 0,2%.

 

Alls voru 68.419 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 3.834 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 5,9%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 33,4% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.021 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 756 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 9,6% sem eru 348 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 3.971 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.101 einstaklinga eða um 4,7% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 24.397 samtals.

Einnig er áhugavert að skoða hlutfallslega fjölgun frá 1. desember 2022 til 1. maí , þar ber að nefna að hlutfallslega fjölgun frá Palestínu er 33,2% sem eru 103 einstaklingar og hlutfallsleg fjölgun frá Belarús er 40% eða 12 einstaklingar.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 611 einstaklinga eða um 0,2%. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. maí 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar