Fólk22. ágúst 2023

Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum og landshlutum í ágúst 2023

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 21. ágúst 2023. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 61% niður í 2,8% þó að jafnaði er hlutfallið um 18% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 21. ágúst 2023.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 61% niður í 2,8% þó að jafnaði er hlutfallið um 18% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 61,1% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 594 erlendir ríkisborgarar af alls 972 íbúum hreppsins. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 43,1% og Bláskógabyggð með 36,4% íbúa.

Sveitarfélög með hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Reykhólahreppi. Alls eru 2,8% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 7 erlendir ríkisborgarar af alls 246 íbúum hreppsins. Næst lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Árneshreppi með 3,8% og Skagabyggð með 4,6% íbúa.

Sveitarfélög með lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, 29,4% íbúa og Vestfirðir koma næst með 21,8% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi eystra, 11,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 21. ágúst 2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar