Fólk15. febrúar 2024

400.000 einstaklingar skráðir með lögheimili á Íslandi

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá eru einstaklingar með skráð lögheimili á Íslandi orðnir 400 þúsund talsins.

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá eru einstaklingar með skráð lögheimili á Íslandi orðnir 400 þúsund talsins. Þetta er þó lifandi tala og líkur á því að hún verði breytileg í kringum 400 þúsund í einhverja daga því á hverjum degi eru margar skráningar í þjóðskrá sem hafa áhrif á heildarfjölda lögheimilisskráninga.

Hér má sjá skiptingu íbúa eftir landshlutum:

Norðurland eystra Norðurland vestra 7.478 Vestfirðir 7.510 Austurland Suðurland Vesturland Höfuðborgarsvæðið Suðurnes 32.371 11.516 35.576 18.070 254.831 32.648

Skráning lögheimilis

Þjóðskrá heldur utan um skráningar einstaklinga hér á landi sem hafa áhrif á réttindi og skyldur þeirra, þar með talið skráningu lögheimilis. Óheimilt er að eiga lögheimili á fleiri en einum stað í einu og ber einstaklingum að tilkynna Þjóðskrá um flutning á lögheimili og er það ábyrgð einstaklinga að upplýsa um rétta búsetu. Einstaklingar 18 ára og eldri verða að tilkynna flutning sjálfir.

Þó er einstaklingum heimilt að dvelja erlendis í allt að 6 mánuði á 12 mánaða tímabili án þess að skrá lögheimili sitt úr landi. Einnig er heimilt að vera skráður með aðsetur erlendis vegna veikinda eða náms og halda lögheimili sínu á Íslandi.

Hver býr í eigninni minni?

Þjóðskrá getur breytt skráningu lögheimilis einstaklinga að eigin frumkvæði eða á grundvelli beiðnar frá þinglýstum eiganda húsnæðis eða öðrum sem hagsmuna eiga að gæta.

 Þinglýstir eigendur geta flett upp hver býr í eign sinni hér og tilkynnt um ranga skráningu þeirra sem ekki búa þar. Þegar tilkynning berst Þjóðskrá fer í gang ferli sem miðast að því að framfylgja stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

Íslenskir ríkisborgarar

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá eru íslenskir ríkisborgarar orðnir 374 þúsund talsins og þar af eru um 13% með skráð lögheimili erlendis. Íslenskir ríkisborgarar með skráða búsetu á Íslandi eru því um 324 þúsund talsins.

374.454
Íslenskir ríkisborgarar
86,7%
324.446
Íslenskir ríkisborgarar búsettir á Íslandi
13,3%
50.008
Íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis

Þjóðskrárgáttin

Þjóðskrárgáttin sýnir gagnlega og skemmtilega tölfræði úr þjóðskrá . Þar er hægt að sjá yfirlit yfir íbúa landsins, búsetur þeirra, aldur, og kyn í öllum sveitarfélögum, tölurnar byggja á lögheimilisskráningu einstaklinga í þjóðskrá. Einnig er hægt að sjá vinsælustu nöfnin og hvar íslenskir ríkisborgarar eru búsettir í heiminum.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar