Í apríl 2025 voru 5.974 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.438 vegabréf gefin út í apríl árið 2024.
Þá voru gefin út 387 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 94% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.