Fólk09. september 2025

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. september 2025

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 613 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. september 2025 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 645 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 135 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 197 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 445 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Fljótsdalshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 14% en íbúum þar fjölgaði um 14 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Grímsnes- og Grafningshreppi eða um 10,8%.  Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 15 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 47 sveitarfélögum. 

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 528 á tímabilinu eða um 37,5%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar