Þjóðskrá07. apríl 2026

Útgáfa vegabréfa og nafnskírteina í mars 2026

Í mars 2026 voru 6.476 ​almenn íslensk vegabréf gefin út og 457 nafnskírteini.

 

Í mars 2026 voru 6.476 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.881 vegabréf gefin út í mars árið 2025.

Þá voru gefin út 457 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 93% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.

Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn og sendiráð Íslands erlendis taka við umsóknum. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar