Þjóðskrá hefur tekið saman tölulegar upplýsingar úr kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara laugardaginn 16. maí nk.
Heildarfjöldi kjósenda er 302.688. Karlar eru 155.023, konur eru 147.457 og einstaklingar með hlutlausa kynskráningu eru 208.
Flesta kjósendur er að finna á Höfuðborgarsvæðinu, eða 194.025, en næstflesta á Suðurlandi, þar sem þeir eru 27.526.
Nánari upplýsingar má nálgast á sérstakri síðu með tölulegum upplýsingum úr kjörskrá.
Þjóðskrá hefur tekið saman tölulegar upplýsingar úr kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara laugardaginn 16. maí nk..jpg)