Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 583 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. júní 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 495 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 90 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 7 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 157 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Fljótsdalshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 7,6% en íbúum þar fjölgaði um 9 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Grímsnes- og Grafningshreppi eða um 6,6%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 16 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 46 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fjölgaði um 11 á tímabilinu eða um 1,2%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.