Í maí 2026 voru 6.062 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.259 vegabréf gefin út í maí árið 2025.
Þá voru gefin út 637 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 94% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.