Alls voru 84.521 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 582 einstaklinga eða um 1% frá 1. desember 2025.
Mest fjölgun hefur verið á ríkisborgurum frá Úkraníu, þeim hefur fjölgað um 248 einstaklinga frá 1. des. sl. Þar á eftir koma ríkisborgarar frá Rúmeníu og loks Spáni.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.720 einstaklinga eða um 0,5%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. júní 2026 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2025.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.