Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 18. ágúst 2026.
Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 68,7% niður í 5,3% þó að jafnaði er hlutfallið um 20,2% þegar horft er til allra sveitarfélaga.
Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 68,7% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 798 erlendir ríkisborgarar af alls 1.162 íbúum hreppsins. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 47,3% og Bláskógabyggð með 40,1% íbúa.
Sveitarfélög með hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara
Lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Kjósarhreppi. Alls eru 5,3% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 17 erlendir ríkisborgarar af alls 319 íbúum hreppsins. Næst lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Eyjafjarðarsveit með 5,7% og Sveitarfélagið Skagarströnd með 6,1% íbúa.
Sveitarfélög með lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara
Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, 32,1% íbúa og Vestfirðir koma næst með 24,1% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi eystra, 12,8%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 18. ágúst 2026.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.