Nafngjöf - skráning

Tilkynntu nafngjöf hér og skráning tekur gildi næsta virka dag.

Afhendingarmáti

Staðfesting í tölvupósti

Afgreiðslutími:

Næsta virka dag

Verð:Gjaldfrjálst

Athugið

Ef forsjá barns er sameiginleg tilkynnir annar forsjáraðilinn nafngjöf hér. Hinn forsjáraðilinn fyllir út formið Nafngjöf - staðfesting innan 3 sólarhringa. Ef nafngjöf er ekki staðfest telst skráning ekki fullnægjandi og verður hafnað í þjóðskrá.

Ef einn fer með forsjá barns tilkynnir sá aðili nafngjöf barns.

Lagaheimild skráningar

Ef barn hefur ekki verið feðrað þá er ekki hægt að kenna það við föður.

Tilgangur þessarar skráningar er að skrá nafngjöf barns í þjóðskrá, sbr. 2. gr. laga um mannanöfn nr.  45/1996.

Lagaheimild skráningar

Nánari upplýsingar um eiginnafn, kenninafn, fullt nafn og miðlað nafn má finna undir nafnritun og birting í þjóðskrá