Athugið!
Afgreiðslutími umsókna um lögheimilisskráningu á Íslandi er allt að fimm virkir dagar eftir að öllum fullnægjandi gögnum hefur verið skilað inn.

Þeir sem stunda nám, starfsnám eða skiptinám hér á landi skulu óska eftir skráningu sem nemar ef dvöl þeirra er lengri en ein skólaönn (3-4 mánuðir).

Umsókn er ekki tekin til vinnslu fyrr en öll gögn hafa borist og umsækjandi komið á skráningarstað og framvísað vegabréfi og öðrum nauðsynlegum gögnum.

Umsækjandi skal sjálfur fylla út umsóknina og gefa upp sitt eigið netfang, því skráningarvottorð er sent með tölvupósti að skráningu lokinni.

Eftirtalin gögn þarf að senda með umsókn:

  • Afrit/mynd af vegabréfi eða löggiltu ferðaskilríki sem á að minnsta kosti 6 mánuði eftir af gildistíma.
  • Staðfestingu á skólavist.
  • Skiptinemasamningur ef við á.
  • Staðfesting á sjúkratryggingu. Ferðatrygging er ekki fullnægjandi.
  • Gögn sem staðfesta framfærslugetu til að minnsta kosti þriggja mánaða (á eingöngu við nema 18 ára og eldri). Athugið að það þarf að koma skýrt fram á framlögðum gögnum hver á umrædda upphæð og að staðfesting má ekki vera eldri en tveggja vikna.

Nemar 17 ára og yngri þurfa einnig að senda eftirfarandi gögn með umsókn sinni:

  • Fæðingarvottorð.
  • Heimild foreldra og afrit af löggiltum skilríkjum þeirra.
  • Samþykki fósturforeldra og afrit af löggiltum skilríkjum þeirra.
  • Staðfesting skiptinemasamtaka.

Nemum 18 ára og eldri er valkvætt er að senda eftirfarandi gögn með umsókn:

  • Fæðingarvottorð.
  • Hjúskaparstöðuvottorð. Einstaklingar eru hvattir til að skila inn hjúskaparstöðuvottorði sínu því hjúskaparstöðuskráning getur haft áhrif á réttindi einstaklinga, og eftir atvikum barna þeirra.

Við komu til landsins þarf að mæta í eigin persónu á skráningarstað og framvísa frumritum eftirfarandi gagna:

  • Vegabréf eða löggilt ferðaskilríki sem á að minnsta kosti 6 mánuði eftir af gildistíma.
  • Heimild foreldra (ef við á).
  • Fæðingarvottorð (ef við á).
  • Hjúskaparstöðuvottorð hafi þeim verið skilað inn í umsóknarferlinu sjálfu.

Kröfur til skjala

Upplýsingar um kröfur til skjala vegna umsókna.

Kröfur til skjala

Skilyrði um lágmarksframfærslu

Yfirlit yfir lágmarksframfærslu