Fólk29. júlí 2026

Gerð kjörskrár fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu 2026

Kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026 var gerð þann 22. júlí 2026 í samræmi við kosningalög nr. 112/2021.

Kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026 var gerð þann 22. júlí 2026 í samræmi við kosningalög nr. 112/2021.

Vefuppflettið Hvar á ég að kjósa? er nú aðgengilegt á vef Þjóðskrár, skra.is, þar sem kjósendur geta athugað hvar þeir eru á kjörskrá.

Skráning kjósanda á kjörskrá miðast við skráningu lögheimilis kl. 12 á viðmiðunardegi kjörskrár þann 22. júlí 2026.

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa verið búsettir erlendis lengur en 16 ár og eru ekki á kjörskrá þurftu að hafa skilað inn umsókn um að vera teknir á kjörskrá fyrir 1. desember 2025 til að eiga kosningarétt í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Sjá frétt um umsókn íslenskra ríkisborgara erlendis.

Hér er hægt að kanna gildistíma og hvenær þarf að sækja um næst: Íslendingar búsettir erlendis – má ég kjósa?

Finna má ýmsar upplýsingar um kosningar á vef landskjörstjórnar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar